Hádegi ehf.

Höfum hlutina eins einfalda og mögulegt er – en alls ekki einfaldari en það –

Þjónusta

Við veitum alhliða fjármálaþjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Hvort sem þú þarft aðstoð við einstaka verkþætti eða vilt fela okkur fjármál fyrirtækisins í heild, leggjum við áherslu á gagnsæi, nákvæmni og persónulega þjónustu.

Ef lykilstarfsmaður er frá vegna orlofs, veikinda eða af öðrum ástæðum getum við einnig sinnt tímabundnum afleysingum og tryggt að reksturinn haldi áfram án truflana.

Við komum bókhaldinu í horf, útbúum ferla og vinnulag með skilvirkni og einfaldleika að leiðarljósi þannig að fjármál og bókhald snúist um reksturinn í stað þess að reksturinn snúist um bókhaldið. Við vinnum bókhaldið alla leið, skilum lögbundnum skýrslum og útbúum uppgjör og ársreikninga.

Verðskráin er verkefnamiðuð og miðuð við tímagjald

Endurheimtu hádegið

Sjálfvirkni og stafrænar lausnir hafa breytt rekstrarumhverfinu. Í mörgum fyrirtækjum er ekki lengur þörf á bókara eða fjármálastjóra í fullu starfi. Verkefnin lenda þess í stað oft á eiganda eða framkvæmdastjóra, sem hefur næg verkefni fyrir.

Við tökum við fjármálunum á einfaldan og skilvirkan hátt, þannig að þú getir einbeitt þér að rekstrinum, farið í ræktina í hádeginu og notið fleiri stunda með fjölskyldunni.